Leturstærðir
Leita

Tveggja ára samstarfsverkefni um Jafnréttiskennitölu fyrirtækja

 

“Við höfum verk að vinna”

 

Mælikvarðar lagðir á árangur fyrirtækja í jafnréttismálum

 

FULLTRÚAR Viðskiptaháskólans á Bifröst annars vegar og viðskiptaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Félags kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu hins vegar undirrituðu í gær með sér tveggja ára samstarfssamning vegna verkefnis er nefnist Jafnréttiskennitala fyrirtækjanna.

 

Að sögn Elínar Blöndal, forstöðumanns Rannsóknarseturs vinnuréttar- og jafnréttismála við Bifröst, kviknaði hugmyndin að Jafnréttiskennitölunni fyrir þremur árum á fyrsta Tengslaneti kvenna á Bifröst. "Á þeirri ráðstefnu varpaði Ingibjörg Þorsteinsdóttir, þáverandi deildarforseti lagadeildar skólans, fram þeirri hugmynd að lagður yrði mælikvarði á árangur fyrirtækja í jafnréttismálum með sérstakri kynjakennitölu," segir Elín og benti á að þegar Rannsóknarsetur vinnuréttar- og jafnréttismála var komið á fót fyrir ári hafi strax verið sett á stefnuskrá setursins að það ynni upplýsingar um stöðu jafnréttismála innan fyrirtækja hérlendis og birti þær árlega.

 

Fram kom í máli Elínar að við hönnun verkefnisins hafi m.a. verið litið til svonefnds FTSE 100-lista, sem er listi yfir hundrað stærstu fyrirtækin á breska hlutabréfamarkaðnum og unnin hefur verið frá árinu 2000. "Sá listi sem er birtur árlega og geymir yfirlit yfir hlutfall kvenna í stjórnum hefur vakið mikla athygli og haft áhrif þar í landi," segir Elín og tók fram að samningurinn sem undirritaður var í gær sé hins vegar talsvert viðameiri.

 

Í verkefninu felst bæði að birta árlega grunnupplýsingar um fjölda kvenkyns stjórnarmanna og stjórnarformanna í hundrað stærstu fyrirtækjunum hérlendis og birta upplýsingar um fjölda æðstu stjórnenda innan fyrirtækjanna, þ.e. forstjóra og framkvæmdastjóra. Jafnframt þessu verða mótaðir fleiri mælikvarðar á árangur fyrirtækja í jafnréttismálum og birtar upplýsingar á grundvelli þeirra, auk þess sem þróuð verði Jafnréttiskennitala fyrirtækjanna sem ætlað er að sýna hvaða árangri hvert fyrirtæki fyrir sig hafi náð í jafnréttismálum þannig að unnt verði að meta fyrirtæki frá ári til árs og gera samanburð á fyrirtækjum. Að sögn Elínar er stefnt að verðlaunaveitingu á grundvelli árangurs fyrirtækjanna í framtíðinni.

 

Afkoma fyrirtækja sem stjórnað er af báðum kynjum er betri

 

Að sögn Elínar verður listi með fyrstu upplýsingum um stöðu jafnréttis í fyrirtækjum fyrir árið 2005 birtur á næstu vikum. Meðal þess sem fram kemur í þeim tölum er að helmingur fyrirtækja á listanum yfir hundrað stærstu fyrirtækin hafa engar konur í stjórn. Af þeim fyrirtækjum sem skoðuð hafa verið eru aðeins fimm fyrirtæki á listanum með jafnmargar eða fleiri konur en karla í stjórn. Yfir 60% fyrirtækja á listanum hafa ekki skriflegar gildandi jafnréttisáætlanir.

 

"Við höfum verk að vinna," sagði Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra, um leið og hún lýsti ánægju sinni með að verkefnið væri nú komið af stað. Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra, tók undir þetta og sagðist líta svo á að hér væri ekki aðeins um tímabundið átak að ræða heldur mikilvægt tæki sem færa myndi samfélagið fram á veginn til aukins raunverulegs jafnréttis kynjanna.

 

Í máli Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, kom fram að samtökin bindi miklar vonir við verkefnið. "Ég held að tæki á borð við þetta sé ótvírætt til þess fallið að skila okkur fram veginn," sagði Hannes og tók fram að nýleg könnun SA staðfesti ákveðna kynskiptingu á vinnumarkaði. "Þar þarf að verða breyting á, því samkvæmt könnuninni horfa ungar konur meira til starfa á ákveðnum vettvangi innan hins opinbera og þjónustugeira, á meðan ungir karlar dreifast jafnar yfir atvinnulífið. Á þessu þarf að vinna, því verði dreifing kynjanna ekki jafnari á atvinnumarkaði þá felst í því sóun."

 

Undir þetta tók Margrét Kristmannsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, og benti jafnframt á að allar kannanir sýni að fyrirtæki þar sem kynjahlutfall í stjórn og stjórnendahóp er jafnt skili miklu betri árangri og afkomu. "Það virðist vera að þegar sjónarmið beggja kynja komi saman þá náist blanda sem skili bestri afkomu fyrirtækja."

 

 

(Greinin birtist í Morgunblaðinu þann 12. apríl 2006)
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is